Fréttir

La Belle Beauty opnar verslun á Aðalgötunni á Sauðárkróki

Pálína Ósk Ómarsdóttir keypti Aðalgötu 10a af Stefáni Pedersen ljósmyndara árið 2021 og ásamt vinkonu sinni Stefaníu Ósk Pálsdóttur sem að keypti sig inn í verkefnið með Pálínu en þær hafa þekkst lengi. Þær gerðu upp húsið og opnuðu snyrti- og fótgerðastofuna Eden. Núna rekur hún fyrirtækið La Belle Beauty sem að var að opna verslun í sama húsi.
Meira

Húsaflutningur gekk að óskum

Aðfaranótt þriðuudags stóð lögregla að umfangsmiklu verkefni við að fylgja gríðarstórum húsum um þjóðveg 1 frá Víðidal í V- Húnavatnssýslu og austur að Engimýri í Öxnadal. Verkefnið hófst eitt að nóttu og lauk um sex tímum síðar eða kl. 7 að morgni. Samkvæmt upplýsingum Feykis voru húsin, sem voru tvö talsins, um níu metrar að breidd og því vandaverk að koma þeim alla leið á leiðarenda.
Meira

Sjómannadagurinn framundan

Skemmtilegar dagskrár á Norðurland vestra um helgina. Á Íslandi hefur verið haldið upp á Sjómannadaginn síðan 1938 og hefur dagurinn haldist hefð sérstaklega í bæjum sem liggja við sjávarsíðuna. Boðið verður upp á alls kyns dagskrár í þéttbýlum Norðurlands vestra en ekki síst á Skagaströnd.
Meira

Aukið frelsi og sanngjarnt verð | Sigurjón Þórðarson skrifar

Þegar fyrst var haldið upp á sjómannadaginn fyrir miðja síðustu öld eða árið 1938 var tilgangur hátíðarhaldanna ekki hvað síst að vekja athygli þjóðarinnar á störfum sjómanna. Gildi starfa þeirra til verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið.
Meira

Þ.Hansen með lægsta tilboð í jarðvegsvinnu vegna menningarhúss

Á 196. fundi byggðarráðs Skagafjarðar sem fram fór 27. maí sl. var lögð fram til kynningar niðurstaða nýafstaðins útboðs jarðvinnu vegna Menningarhúss á Sauðárkróki. Niðurstaðan var sú að lægstbjóðandi var Þ. Hansen ehf. sem bauð 49.619.193 kr. sem er 35,1% af kostnaðaráætlun sem Verkís vann fyrir Skagafjörð vegna verksins.
Meira

Leikur á Blönduósvelli í kvöld

Magni frá Grenivík kemur í heimsókn á Blönduósvöll í kvöld, föstudaginn 5. júní, kl. 19:15 í sjöttu umferð 2. deild karla. Deildin hefur farið vel af stað og leikirnir hafa verið jafnir þannig að við má búast hörku leik.
Meira

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Náðst hefur samkomulag um að framlengja núgildandi búvörusamninga um eitt ár, en þeir hefðu ella runnið út um næstu áramót. Í frétt á vef Bændablaðsins segir að tíminn verði nýttur í viðræður um framtíðarstarfsskilyrði landbúnaðarins, en undirbúningur af hálfu Bændasamtakanna hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Viðræðuáætlun liggur fyrir og hefur verið samþykkt af báðum aðilum.
Meira

Prjónagleðin á Blönduósi að skella á

Prjónagleðin á Blönduósi er hátíð fyrir áhugafólk um prjónaskap, handavinnu og garn. og á dagskránni eru námskeið, fyrirlestrar, garntorg, fjölbreyttir viðburðir og samvera. Líkt og komið hefur fram í Feyki er tíunda Prjónagleðin að skella á en hún hefst á morgun, föstudaginn 5. júní. Það er Húnabyggð sem stendur að baki gleðinni og við lögðum nokkrar spurningar fyrir Pétur Arason sveitarstjóra.
Meira

Ný sveitarstjórn Skagafjarðar hefur hafið störf

Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Skagafjarðar fór fram í gær, 3. júní, og þar með hefur ný sveitarstjórn hafið störf. Á fundinum var kosið í ráð og nefndir sveitarfélagsins ásamt því að ráðning nýs sveitarstjóra, Magnúsr Barðdal Reynissonar, var staðfest.
Meira

Tvö verkefni nemenda Grunnskóla austan Vatna í úrslitum Nýsköpunnarkeppni Grunnskólanna

Nemendur á miðstigi í Grunnskólanum austan Vatna stóðu sig frábærlega í Nýsköpunnarkeppni grunnskólanna. Alls voru 502 verkefni send inn í keppnina og aðeins 25 verkefni valin áfram. Tvö verkefni frá Grunnskólanum austan Vatna voru valin í úrslitin.
Meira